Ræður Árni Johnsen hvort Ísland gengur í ESB?

 Við landarnir höfum þá tilhneigingu að taka upp hráar yfirlýsingar einstakra ráðamanna í útlöndum og leggja almennt út af þeim.  Í þessari frétt í Süddeutschen Zeitung, sem vitnað er í og síðan lagt út af í bloggi Guðmundar Jónasar Kristjánssonar í dag í Mbl.is, er eiginlega samansuða af yfirlýsingum þriggja áhrifamanna í CSU í Bæjaralandi, flokksformannsins Seehofer, framkvæmdastjórans Dobrindt og formanns ESB fulltrúa CSU.  - Þeir CSU mennirnir eru í glimu við Angelu Merkel kanzlara um ýmislegt og hún tekur þeim stundum sem órólegu deildinni í stjórn sinni.  "Við viljum fyrst ræða um uppbyggingu ESB áður en bandalagið tekur inn nýja aðila." - Og "ESB getur ekki leikið björgunarhlutverk fyrir efnahagskreppu á Íslandi."  Þeir félagarnir eru semsagt í hrossakaupum við kanzlarann og yfirstjórn landsins. - Og Merkel beitir gjarna húmor í samskiptum við þá eða aðallega Seehofer formann flokksins.  "Ef þið viljið bíta, bítið þá hinn rétta," segir hún.  Seehofer segir flokk sinn oft hafa verið óþægilegan, það tilheyri venjum. - Flokkurinn er oft fremur öfgafullur að mínu mati, en það hefur verið viðtekið alveg síðan Franz Joseph Strauss var formaður og ráðherra í ríkisstjórn Adenauers. Menn kippa sér ekkert upp við það í München eða Bayern. 

En svo kippa menn sér upp við það hér á landi og ýmsir leggja stórt út af þessum fréttum.  Það getur verið að okkur þyki bara sniðugt að hlusta á yfirlýsingar Árna Johnsen um ESB og aðildarumsókn okkar.  Það er alltaf svona.  Það þarf einhverja trúbadora og skemmtikrafta til að brýna okkar sýn á öfgadæmi í lýsingum á flóknum málum, sem erfitt er að skilja fyrir almenning.   

Ritara finnst ástæða til að geta þess, að hann hefur dvalist í níu ár í Bæjaralandi og lesið Süddeutschen Zeitung alltaf af og til.


mbl.is Andsnúnir inngöngu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Algjörlega sammmála og viðbúið að margir hér heima á Íslandi þekki ekki þennan flokk og haldi að þetta sé mun merkilegri eða óvæntari yfirlýsing en þetta er í raun og veru.

Svala Jónsdóttir, 18.7.2009 kl. 14:39

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Þetta er gamall nasistaflokkur sem hefur haft útlendingahatur á stefnuskrá sinni. Frans Josef Strauss heitinn var eðal nasisti.

Finnur Bárðarson, 18.7.2009 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jónas Bjarnason

Höfundur

Jónas Bjarnason
Jónas Bjarnason
Höfundur er fyrrverandi háskólakennari og sérfræðingur í ríkisþjónustu

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • untitled
  • untitled
  • untitled
  • untitled
  • Litíum-rafhlaða

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband